|
Aftur í upphafssíðu

60´s vefur
Smellið á myndina |
Sjómannavalsinn.
Það gefur á bátinn við Grænland,
og gustar um sigluna kalt.
En togarasjómanni tamast það er
að tala sem minnst um það allt.
En fugli sem flýgur í austur,
er fylgt yfir hafið með þrá,
og vestfirskur jökull sem heilsar við horn,
í hilling´ með sólroðna brá.
Segir velkominn heim,
segir velkominn heim,
þau verma hin þögulu orð,
sértu velkominn heim,
yfir hafið og heim,
þá er hlegið við störfin um borð.
En geigþungt er brimið við Grænland,
og gista það kýs ekki neinn.
Hvern varðar um draum þess
og vonir og þrár,
sem vakir þar hljóður og einn.
En handan við kólguna kalda
býr kona sem fagnar í nótt.
Og raular við bláeygan sofandi son
og systur hans vaggandi hljótt.
Viðlag....
??
|
 |